Fotbolti.net
31.07.13 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson

Styrmir, Davíð Már og Daníel Sæberg í ÍR (Staðfest)

Styrmir Erlendsson í leik með Fylki

Styrmir Erlendsson í leik með Fylki

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

ÍR í 2. deildinni hefur fengið til sín vænan liðsstyrk fyrir átökin í seinni hluta mótsins, en Styrmir Erlendsson er kominn á láni frá Fylki í Pepsi-deildinni og þá er Davíð Már Stefánsson og Daníel Sæberg Hrólfsson komnir frá Létti.
Styrmir, sem er fæddur árið 1993, er gríðarlega efnilegur sóknarmaður, en hann er uppalinn í Fylki.

Hann hefur verið á láni í sumar hjá KFR í 3. deildinni, en hann skoraði 2 mörk í 8 leikjum með liðinu í sumar.

Davíð Már Stefánsson og Daníel Sæberg Hrólfsson skipta þá úr Létti í ÍR, en báðir eru fæddir árið 1991.

Davíð Már var lykilmaður í liði ÍR fyrir nokkrum árum og á fjölmarga leiki að baki með yngri landsliðum Íslands, en Daníel er einnig uppalinn ÍR-ingur. Daníel á að baki 24 leiki og 12 mörk með Létti.

Leikmennirnir eru ekki í leikmannahópnum hjá ÍR í kvöld gegn Ægi, en þeir verða komnir með leikheimild fyrir næsta leik liðsins í deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.