31.07.13 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Tindastóll fær Atla Fannar á láni (Staðfest)


Mynd: Guðný Ágústsdóttir


Mynd: Guðný Ágústsdóttir
Tindastóll hefur fengið framherjann Atla Fannar Jónsson á láni frá Breiðabliki út tímabilið.
Atli Fannar er fæddur árið 1995 en hann hefur spilað þrjá leiki í Pepsi-deildinni í sumar.
Atli er uppalinn Bliki en hann á að baki leiki með bæði U17 og U19 ára landsliði Íslands.
Atli Fannar er fæddur árið 1995 en hann hefur spilað þrjá leiki í Pepsi-deildinni í sumar.
Atli er uppalinn Bliki en hann á að baki leiki með bæði U17 og U19 ára landsliði Íslands.
Tindastóll mætir Þrótti í 1. deildinni annað kvöld en Atli Fannar gæti spilað sinn fyrsta leik með liðinu þar.
