Fotbolti.net
31.07.13 - 16:37
Magnús Már Einarsson

Viktor Unnar í Þrótt (Staðfest)

Viktor Unnar í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur hefur fengið framherjann Viktor Unnar Illugason í sínar raðir.

Viktor hefur í sumar verið á láni hjá Njarðvík í 2. deildinni frá Breiðabliki en hann mun nú leika með Þrótti út sumarið.

Hinn 23 ára gamli Viktor gekk í raðir Þróttar vorið 2008 en spilaði ekkert þar sem hann meiddist á svipuðum tíma og hann kom til félagsins.

Viktor Unnar var á sínum tíma á mála hjá Reading á Englandi en í fyrra spilaði hann með Haukum í 1. deildinni.
Viktor getur leikið sinn fyrsta leik með Þrótti þegar liðið mætir Tindastóli í 1. deildinni annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.