Fotbolti.net
31.07.20 - 17:47
Elvar Geir Magnússon

Staðfest að leikmaður Víkings Ó. er smitaður

Staðfest að leikmaður Víkings Ó. er smitaður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Leikmaður Víkings í Ólafsvík er með kórónaveiruna en félagið hefur staðfest þetta.

Leikmaður liðsins fór í skimun þar sem grunur lék á um að hann væri smitaður. Þær grunsemdir reyndust á rökum reistar.

Ólafsvíkingar eru í níunda sæti Lengjudeildarinnar eftir átta umferðir.
Tilkynning Víkings Ó.:
Nú síðdegis fékkst staðfest að leikmaður Víkings Ó. er smitaður af Covid19 veirunni.

Félagið mun fylgja fyrirmælum lækna og sóttvarnaraðila í einu og öllu í framvindu málsins. Við hvetjum að sama skapi íbúa Snæfellsbæjar að huga vel að sóttvörnum og fara varlega.

Sjá einnig:
Engar æfingar í meistaraflokki til 13. ágúst
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.