Fotbolti.net
31.07.23 - 15:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Emelía yfirgefur Selfoss og fer aftur til Svíþjóðar (Staðfest)

Emelía Óskarsdóttir.

Emelía Óskarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Emelía Óskarsdóttir hefur yfirgefið herbúðir Selfoss eftir að hafa leikið á láni hjá félaginu fyrri hluta tímabilsins.
Emelía kom á Selfoss frá Kristianstad í Svíþjóð á láni fyrir leiktíðina og hún spilaði tíu leiki í Bestu deildinni. í þessum tíu leikjum skoraði hún eitt mark.

Emelía er fædd árið 2006 en hún er einn efnilegasti leikmaður landsins. Hún var hluti af U19 landsliði Íslands sem spilaði á Evrópumótinu fyrr í þessum mánuði.

„Mér fannst þetta eiginlega 'no-brainer' því það er mjög gott samband á milli Bjössa og Betu," sagði Emelía í viðtali við Fótbolta.net fyrir nokkru síðan er hún var spurð út í skipti sín á Selfoss en Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss, er fyrrum aðstoðarþjálfari Elísabetu Gunnarsdóttur í Kristianstad. „Svo er þetta bara mjög huggulegt og mjög þægilegt. Það eru frábærar stelpur í liðinu og ég sá ekki neitt rangt við þetta."

„Mér finnst nauðsynlegt að spila í 90 mínútur í hverjum leik núna. Þetta er gott umhverfi, gott þjálfarateymi og stelpurnar eru æði. Mér finnst allt frábært við þetta. Ég þarf að fá 90 mínútur til að öðlast reynslu."

Emelía fer núna aftur til Kristianstad en sænska úrvalsdeildin er í fullum gangi. Kristianstad er sem stendur í sjötta sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.