Fabinho farinn til Al-Ittihad frá Liverpool (Staðfest)

Fabinho skrifaði undir þriggja ára samning við Al Ittihad

Mynd: Al Ittihad

Liverpool seldi í dag brasilíska miðjumanninn Fabinho til Al-Ittihad í Sádi-Arabíu.
Fabinho kom til Liverpool frá Mónakó árið 2018 og komu þau félagaskipti eins og þruma úr heiðskíru lofti, en sá átti eftir að reynast Liverpool mikilvægur.
Hann vann ensku úrvalsdeildina, Meistaradeildina, báðar bikarkeppnirnar á Englandi ásamt fleiri titlum.
Fabinho er nú farinn til Sádi-Arabíu en hann samdi við félagið í dag og greiðir það Liverpool 40 milljónir punda, sem er svipuð upphæð og Liverpool greiddi fyrir hann fyrir fimm árum.
Þetta er fimmti miðjumaðurinn sem Liverpool losar sig við í glugganum á eftir þeim Jordan Henderson, Naby Keita, Alex Oxlade-Chamberlain og James Milner.
Fabinho verður liðsfélagi Karim Benzema og N'golo Kanté.

???? ?????? ????? ??? ?????? ?#?????_?????? pic.twitter.com/v5Dvgz6SgX
— ???? ??????? ??????? (@ittihad) July 31, 2023