Fotbolti.net
31.07.23 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Finnbogi Laxdal og tveir aðrir í Hauka (Staðfest)

Haukar fengu þrjá nýja leikmenn á dögunum

Haukar fengu þrjá nýja leikmenn á dögunum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar í 2. deild karla hafa fengið þrjá leikmenn til liðs við sig fyrir átökin í seinni hluta tímabilsins.
Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson er mættur til félagsins á láni frá ÍA út tímabilið.

Hann er fæddur árið 2002 og hefur komið við sögu í fjórum leikjum með ÍA í sumar.

Finnbogi með Kára tvö tímabilin á undan en hann gerði 5 mörk í 17 leikjum í 3. deildinni á síðasta ári. Finnbogi spilaði sinn fyrsta leik fyrir Hauka í 1-1 jafnteflinu gegn Dalvík/Reyni á laugardag og skoraði meðal annars mark Hauka í leiknum.

Luis Carlos Cabrera Solys er þá mættur frá KH en hann á að baki 48 leiki og 8 mörk í deild- og bikar með Hlíðarendafélaginu.

Paulo Ippolito, einn besti leikmaður RB, fékk einnig félagaskipti sín til Hauka.

Ippolito er með 14 mörk í 19 leikjum í sumar en hann kom hressilega á óvart í 4-1 tapi RB gegn Val í Mjólkurbikarnum og ljóst að Haukar eru að fá öflugan leikmann þarna en hann kom einnig við sögu í jafnteflinu gegn Dalvík/Reyni.

Haukar eru í 8. sæti deildarinnar með 16 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.