Fotbolti.net
31.07.23 - 22:17
Sverrir Örn Einarsson

Frans: Gengur ekki svona mikið lengur

Auglýsing
Frans Elvarsson

Frans Elvarsson

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Keflavík þurfti að gera sér það að góðu að lúta í gras á heimavelli gegn FH í kvöld en lokatölur urðu 3-2 gestunum úr Hafnarfirði í vil.
Eftir að hafa lent tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik bitu heimamenn í skjaldarrendur í þeim síðari og náðu að jafna leikinn þegar skammt var til leiksloka. Það voru þó gestirnir sem reyndust grimmari undir lokinn og uppskáru sigurmark. Frans Elvarsson leikmaður Keflavíkur var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum.
„Þetta er svolítið að gerast hjá okkur. Við erum inni í flestum leikjunum en missum alltaf niður það sem við erum að skapa okkur undir lokin og við þurfum að finna eitthvað út úr því.“

Frans er einn af reynslumeiri leikmönnum Keflavíkur en þessi baráttuglaði miðjumaður á rúmlega 160 leiki að baki í efstu deild með Keflavík. Hvernig er fyrir hann sem reynslubolta í liðinu að miðla að sinni reynslu inn í hópinn þegar svona gengur? En Keflavík hefur ekki unnið leik frá því í fyrstu umferð mótsins

„Það er í rauninni bara að halda áfram, standa sig vel á æfingum og gera vel í leikjum. Setja annan fótinn fram fyrir hinn en auðvitað leggst þetta aðeins á mann og það eru fleiri leiðinlegir dagar en skemmtilegir. “

Ákveðin framför virðist þó vera á leik Keflavíkur sem er farið að skora fleiri mörk en liðið gerði framan af móti þó vissulega hafi varnarlínan tekið að leka meira á sama tíma. Merkir Frans framför á liðinu?

„Já við erum allavega ekkert hættir. Það sýnir sig á síðustu leikjum hjá okkur. En við þurfum að fara finna sigur fljótlega þar sem þetta gengur ekki svona mikið lengur.“

Sagði Frans en allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.