Fotbolti.net
31.07.23 - 09:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Guðmundur Baldvin í Mjällby (Staðfest)

Guðmundur Baldvin Nökkvason.

Guðmundur Baldvin Nökkvason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sænska félagið Mjällby er búið að kaupa miðjumanninn Guðmund Baldvin Nökkvason frá Stjörnunni. Sænska félagið staðfestir þessi tíðindi í morgunsárið.

Mjällby er í efstu deild, Allsvenskan, í Svíþjóð.
Guðmundur Baldvin er U19 landsliðsmaður sem hefur verið í stóru hlutverki hjá Stjörnunni í sumar. Hann var þá hluti af lokahópi Íslands á Evrópumóti U19 landsliða.

Hann lék sína fyrstu leiki tímabilið 2021, lék nítján leiki á síðasta tímabili og þrettán af fyrstu 17 leikjum Stjörnunnar í deildinni á þessu tímabili.

Hann var ekki í leikmannahópi Stjörnunnar þegar liðið 1-1 gegn nágrönnum sínum í Breiðabliki síðasta laugardag.

Mjällby er sem stendur í níunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en Guðmundur Baldvin er annar leikmaður Stjörnunnar sem heldur til Svíþjóðar í þessum félagaskiptaglugga. Hinn leikmaðurinn er Ísak Andri Sigurgeirsson.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.