Fotbolti.net
31.07.23 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Leeds lánar Wöber til Gladbach (Staðfest)

Leeds lánar Wöber til Gladbach (Staðfest)
Canon

Mynd: Leeds

Max Wöber hefur verið lánaður til Borussia Mönchengladbach út komandi tímabil.

Wöber gekk í raðir Leeds í janúar en náði ekki að hjálpa liðinu að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni. Austurríski miðjumaðurinn lék 19 leiki með Leeds í öllum keppnum.

Hann ætlar að spila í Þýskalandi á komandi tímabili, í efstu deild.
Gladbach endaði í 10. sæti þýsku deildarinnar á síðasta tímabili og ætlar liðið sér stærri hluti á komandi tímabili.

Gladbach er sagt fá kauprétt á leikmanninum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.