Leicester fær Mavididi frá Montpellier (Staðfest)

Mynd: Leicester

Mynd: Leicester
Leicester City staðfesti í dag komu Stephy Mavididi en hann kemur frá Montpellier í Frakklandi.
Mavididi er 25 ára gamall leikmaður sem getur bæði spilað á vængnum og sem fremsti maður.
Hann á yfir hundrað leiki í efstu deild í Frakklandi með Montpellier og Reims en hann er upprunalega frá Bretlandseyjum.
Englendingurinn ólst upp hjá Arsenal en fór til Juventus fyrir fimm árum og spilaði meðal annars einn deildarleik með félaginu áður en hann fór til Frakklands.
Leicester hefur nú fest kaup á Mavididi en kaupverðið kemur ekki fram. Hann skrifaði undir fimm ára samning.
Mavididi á að hjálpa liðinu að komast aftur upp í deild þeirra bestu en liðið féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og spilar því í B-deildinni á komandi tímabili.