Sigurbergur Áki í HK (Staðfest)

Sigurbergur Áki

Mynd: HK

Sigurbergur Áki

Mynd: HK
HK tilkynnti rétt í þessu að Sigurbergur Áki Jörundsson væri genginn í raðir félagsins á láni frá Stjörnunni út tímabilið.
Sigurbergur (Beggi) er 19 ára (2004) og er uppalinn hjá Stjörnunni en hann spilaði með Gróttu í Lengjudeildinni á seinustu leiktíð.

Hann byrjaði tvo af þremur leikjum U19 landsliðsins á lokamóti EM fyrr í þessum mánuði. Hann hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Stjörnunni og fer til HK í leit að fleiri mínútum. Hann var ekki í leikmannahópi Stjörnunnar í tveimur af síðustu þremur leikjum liðsins.
Miðjumaðurinn Ívar Orri Gissurarson spilar ekki fleiri leiki með HK á tímabilinu þar sem hann er á leið í háskóla í Bandaríkjunum. Sigurbergur getur leyst stöður á miðsvæðinu og getur einnig spilað sem miðvörður.
„Beggi er flott viðbót við hópinn og mun hann styrkja liðið fyrir lokasprettinn í Bestu Deildinni. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í HK," segir í tilkynningu HK.