Fotbolti.net
31.07.23 - 15:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sólveig Larsen heim í Breiðablik (Staðfest)

Í leik með Breiðabliki tímabilið 2019.

Í leik með Breiðabliki tímabilið 2019.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Hertz
Breiðablik hefur tilkynnt um komu Sólveigar Larsen til félagsins, félagið gerði það í dag með tilkynningu á samfélagsmiðlum.

Fótbolti.net fjallaði um það á laugardag að Sólveig Jóhannesdóttir Larsen væri að ganga í raðir Breiðabliks.
„Ég held að það hafi verið gengið frá því í gær. Hún er komin heim," sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, við Fótbolta.net á laugardag. „Við erum að missa fjóra leikmenn út í háskólaboltann og við þurfum að skoða það að fylla inn í hópinn fyrir það."

Sólveig kemur frá Örebro í Svíþjóð en húnn fékk samningi sínum rift við sænska félagið fyrr í sumar. Hún var orðuð við Val en ákvað frekar að semja við Breiðablik.

„Þetta eru gleðitíðindi og hlökkum við til að sjá Sólveigu aftur í græna búningnum á vellinum. Velkomin heim Sólveig," segir í tilkynningu Breiðabliks.

Sólveig er 22 ára gömul og getur leyst margar stöður framarlega á vellinum og á miðsvæðinu. Hún er uppalin hjá Breiðabliki en var hjá Val tímabilin 2021 og 2022 áður en hún hélt út til Svíþjóðar.

„Sólveig fer í Breiðablik og við óskum henni góðs gengis. Hún er búin að standa sig vel fyrir okkur og þetta er ákvörðun sem hún vill taka. Við vonum að það gangi vel hjá henni," sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, í viðtali við Fótbolta.net þegar hann var spurður út í Sólveigu á laugardag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.