Fotbolti.net
31.07.23 - 21:58
Brynjar Ingi Erluson

Vestri fær fyrrum liðsfélaga Alfreðs (Staðfest)

Vestri fær fyrrum liðsfélaga Alfreðs (Staðfest)
Canon

Mynd: Vestri

Vestri hefur landað spænska sóknarmanninum Iker Hernandez en félagið greinir frá þessu í kvöld.
Þessi 29 ára gamli leikmaður ólst upp hjá Real Sociedad á Spáni og spilaði einn leik fyrir félagið í La Liga en þá kom hann inn á fyrir íslenska landsliðsmanninn Alfreð Finnbogason í 1-1 jafntefli gegn Levante.

Hann hefur síðustu ár spilað í Suður-Ameríku, bæði í Bólivíu og nú síðast Síle þar sem hann lék fyrir Santiago Wanderers.

Hernandez á þá 21 leik og 9 mörk að baki fyrir yngri landslið Spánar og því alveg ljóst að Vestri er að fá hörkuleikmann inn í hópinn fyrir átökin í síðari hluta deildarinnar.

Vestri er í 6. sæti með 19 stig þegar níu leikir eru eftir af mótinu en liðin sem hafna í 2. til 5. sæti fara í umspil um sæti í Bestu deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.