Viðar Ari í FH (Staðfest)

Viðar Ari er mættur í FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðar Ari er mættur í FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Ari Jónsson hefur samið við FH en félagið staðfesti hann, Arnór Borg Guðjohnsen og Grétar Snæ Gunnarsson í tilkynningu í kvöld.
Arnór Borg og Grétar Snær eru komnir með leikheimild og eru á bekknum gegn Keflavík en sá leikur hefst eftir rúman hálftíma.
Þá tilkynnti FH einnig VIðar Ara en hann kemur á frjálsri sölu eftir að hafa spilað fyrir ungverska félagið Honved síðasta árið.
Viðar Ari þekkir vel til hjá FH. Hann spilaði með liðinu á láni frá norska félaginu Brann árið 2018.
Hann er uppalinn í Þrótti en skipti yfir Fjölni þegar hann var aðeins 15 ára gamall. Þar gerði hann góða hluti sem varð til þess að hann var seldur til Brann.
Eftir brösuglegt gengi hjá Brann skipti hann yfir í Sandefjord og það var þar sem hann lét ljós sitt skína. Þar kom hann að 30 mörkum í 86 leikjum áður en hann fór á frjálsri sölu til Honved.
Viðar kemur til með að styrkja hóp FH gríðarlega en liðið er í 6. sæti með 21 stig. Viðar er ekki kominn með leikheimild og því ekki í hópnum í kvöld.

Vorum að opna hliðin ? Bjóðum þrjá nýja leikmenn velkomna í FH. Komið fagnandi. #ViðErumFH pic.twitter.com/HejCO1XOVN
— FHingar (@fhingar) July 31, 2023