Fotbolti.net
31.08.19 - 18:50
Ester Ósk Árnadóttir
Í samstarfi við styrktaraðila

Baldvin Ólafs: Ef við spilum eins og í dag hef ég ekki áhyggjur

Auglýsing
Baldvin var þjálfari Magna í dag en hefur oft sést inn á vellinum fyrir liðið.

Baldvin var þjálfari Magna í dag en hefur oft sést inn á vellinum fyrir liðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Baldvin Ólafsson var aðalþjálfari Magna í leiknum á móti Gróttu í dag þar sem að Sveinn Þór Steingrímsson tók út bann.

„Við fáum tvö mörk á okkur úr föstum leikatriðum sem við vorum búnir að fara sérstaklega yfir. Þetta var sárt en ég er gríðarlega sáttur við Magna liðið eftir að við fáum á okkur þessi mörk," sagði Baldvin eftir 0-2 tap á heimavelli.
Magni leyfðu gestunum að sækja á sig í upphafi. Eftir að hafa fengið tvö mörk á sig færðu þeir sig töluvert ofar í pressuna og það gekk betur.

„Sennilega hefðum við bara átt að byrja þannig. Það hefði örugglega verið betra. Miðverðirnir fengu að leika svolítið lausum hala þarna til að byrja með. Þeir fengu of mikinn tíma og náðu að búa til hornin og aukaspyrnurnar. Við vorum sammála um það að við getum verið sáttir við leik okkar liðs. Við verðum ekkert sérstaklega stressaðir yfir síðustu þremur leikjunum ef við spilum svona."

Magni vildi fá víti í lok fyrri hálfleiks þegar boltinn virtist fara í hendina á leikmanni Gróttu.

„Það var enginn leið fyrir mig að sjá það. Ég sá bara tíu Magnamenn lyfta upp höndum og það er oft gott að lesa í viðbrögð leikmanna en auðvitað biðja menn um víti ef boltinn fer í hendi. Hvort þetta var hendi upp við líkama eða ekki hef ég ekki hugmynd um."

Davíð Rúnar sem spilaði með liðinu á síðasta tímabili kom inn í liðið í dag. Hann hefur ekkert spilað í sumar. Ástæða þess er að allir miðverðir Magna voru í banni í dag.

„Já vonandi. Hann er góður drengur og Magnamaður sem er annt um klúbbinn eins og okkur öllum og hann svaraði kallinu. Við vorum í ströggli, vissum að einn yrði í banni og svo óvænt fær hinn bann. Hann stóð sig vel í 90 mínútur."

Magni er í fallsæti þegar þrír leikir eru eftir.

„Ef við spilum eins og við spiluðum í dag hef ég engar áhyggjur af því. Við eigum Víking Ólafsvík í næsta leik og það eru þrír punktar þar."

Viðtalið er hægt að sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.