Fotbolti.net
31.08.21 - 14:52
Brynjar Ingi Erluson

Einn efnilegasti vinstri bakvörður Evrópu á leið til PSG?

Nuno Mendes

Nuno Mendes

Canon

Mynd: EPA

Portúgalski vinstri bakvörðurinn Nuno Mendes gæti verið á leið til franska félagsins Paris Saint-Germain áður en glugginn lokar klukkan 22:00 í kvöld.
Mendes er einn allra efnilegasti knattspyrnumaður Portúgal um þessar mundir en hann er 19 ára gamall og fór með landsliðinu á Evrópumótið í sumar.

Hann hefur verið að gera góða hluti með Sporting Lisbon og hjálpaði liðinu að vinna titilinn á síðasta tímabili.

Samkvæmt frönskum miðlum er Paris Saint-Germain í viðræðum við Sporting um kaup á Mendes.

Kaupverðið er í kringum 40 milljónir evra og hafa öll stærstu félög Evrópu áhuga á því að fá hann. Manchester City er einnig í baráttunni.

Sporting ákvað í gær að selja leikmanninn frá félaginu en PSG vonast til að samkomulagi náist á næstu klukkutímum svo hægt verði að ganga frá pappírunum fyrir lok gluggans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.