Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 31. ágúst 2021 12:18
Elvar Geir Magnússon
Sevilla ekki heyrt í Chelsea síðan á föstudag
 Jules Kounde.
Jules Kounde.
Mynd: EPA
Chelsea hefur verið orðað við franska varnarmanninn Jules Kounde hjá Sevilla. Monchi, yfirmaður fótboltamála hjá Sevilla, ræddi við spænska fjölmiðla:

„Eina formlega tilboðið frá Chelsea kom síðasta miðvikudag. Við vorum ekki sáttir við tilboðið. Við höfum ekki rætt við Chelsea síðan á föstudagskvöld," segir Monchi.

Í slúðurpakkanum var sagt að Chelsea hefði sagt umboðsmanni Kounde að félagið myndi gera lokatilraun til að kaupa leikmanninn.

Kounde er 22 ára og spurning hvort Chelsea geri gluggadagstilboð.

Kounde lék ekki með Sevilla um síðustu helgi þar sem félagið taldi að hann væri ekki með fulla einbeitingu vegna fréttaflutnings um sig og áhuga Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner