Frítt er á leik Þórs og ÍBV í Lengjudeild karla í dag en leikurinn hefst klukkan 17:30.
Leik liðanna var frestað fyrr í ágúst eftir að Eyjamenn neyddust til að fara í sóttkví.
Allir fá frían aðgang á völlinn gegn því að ná í frímíða í Stubb-appið þar em er skráð sig samkvæmt sóttvarnarreglum.
Einnig er hægt að skrá sig handvirkt við innganginn.
ÍBV er í 2. sæti með 35 stig og í harðri baráttu um sæti í efstu deild en Þór er í 10. sæti með 20 stig.
Athugasemdir