Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 31. ágúst 2021 18:32
Victor Pálsson
Tuchel útskýrir af hverju Chilwell hefur ekki spilað keppnisleik
Mynd: EPA
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, hefur útskýrt af hverju Ben Chilwell hefur ekki spilað keppnisleik fyrir liðið á leiktíðinni.

Chilwell var með enska landsliðinu á EM í sumar en fékk ekkert að spila er liðið komst í undanúrslit.

Marcos Alonso hefur leikið fyrstu leiki Chelsea í vinstri bakverði og er Tuchel með augljósa útskýringu á því.

„Með Ben Chilwell þá er þetta mjög einfalt. Hann kom til baka með síðustu leikmönnum Englands," sagði Tuchel.

„Þegar hann kom þá hafði Marcos Alonso tekið þátt í fimm vikum á undirbúningstímabilinu. Hann spilaði fyrsta keppnisleikinn eftir frábæran undirbúning."

„Hann var einfaldlega meira tilbúinn líkamlega sem er eðlilegt."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner