
Íslenska kvennalandsliðið mætir því Hvít-Rússneska í undankeppni HM á föstudaginn. Fótbolti.net spjallaði við Dagnýju Brynjarsdóttur í gær.
Dagný leikur með West Ham á Englandi en hún breytti um treyju númer og fór í treyju númer 10. Þá var hún gerð að fyrirliða liðsins.
„Tíu er uppáhalds númerið mitt, ég gat ekki, ekki skipt, það er heiður að þeir treysti mér að vera með fyrirliðabandið og leiða liðið áfram, gaman af því," sagði Dagný.
Hún fékk að vita það þegar hún mætti til Englands eftir EM að hún yrði fyrirliði liðsins.
„Ég var einn af tveimur varafyrirliðum á síðustu leiktíð, þannig að ég vissi að það gat verið möguleiki. Það er nýtt þjálfarateymi, nýjar áherslur. Ég viðurkenni að þegar maður er að skrifa undir er ekki að pæla í þessu en þeir létu mig vita þegar ég kom aftur út eftir EM."
Dagný hefur verið stuðningsmaður West Ham frá því hún var lítil en hún valdi treyjunúmerið svolítið út af Paolo Di Canio fyrrum leikmanni liðsins.
„Já, ég viðurkenni að ég hélt mikið uppá hann þegar ég fór fyrst að fylgjast með West Ham, hann var númer 10 og framherjinn, aðalgæjinn í liðinu," sagði Dagný.