Fjórar fyrstu umferðir Pepsi-deildarinnar eru að baki en hér má sjá tíu leikmenn sem margir bjuggust við að væru búnir að skora á þessum tímapunkti. Þessir eiga eftir að brjóta ísinn á þessu tímabili og væntanlega margir Draumaliðsdeildarspilendur sem bíða spenntir!
Mótið er nýfarið af stað svo það er engin ástæða fyrir þessa menn að fara að örvænta... allavega ekki alveg strax.
Mótið er nýfarið af stað svo það er engin ástæða fyrir þessa menn að fara að örvænta... allavega ekki alveg strax.
Gary Martin á enn eftir að skora sitt fyrsta mark í Pepsi fyrir Reykjavíkur-Víkinga. Liðið þarf á mörkum hans að halda enda byrjunin á sumrinu langt undir væntingum!
Hinn stóri og stæðilegi Hólmbert Aron Friðjónsson leikur í fremstu víglínu KR-inga en á eftir að opna sinn markareikning fyrir sumarið.
Jonathan Glenn fékk silfurskóinn í fyrra. Byrjaði tímabilið í banni en fékk góð færi gegn Þrótti sem hann nýtti ekki.
Sito átti að vera potturinn og pannan í sóknarleik Fylkis. Árbæjarliðið hefur skorað eitt mark í fjórum leikjum og við auglýsum eftir Spánverjanum.
Garðar Gunnlaugsson hefur verið að koma sér í færi en er ekki kominn á blað. Klúðraði víti hjá Ólsurum. Margir héldu að hann hefði skorað gegn Fjölni en Arnar Már Guðjónsson átti markið.
Björgvin Stefánsson raðaði inn mörkum í 1. deildinni í fyrra en á eftir að komast á blað hjá Val. Hlíðarendafélagið verður að fara að fá meira úr sínum fremstu mönnum.
Víkingar vonuðust til að Viktor Jónsson myndi springa út í sumar en hann á enn eftir að láta að sér kveða.
Emil Pálsson var besti leikmaður síðasta tímabils og skoraði sjö mörk. Ekki hans aðalhlutverk að skora mörkin en FH-ingar vilja fá mörk úr öllum áttum.
Athugasemdir