Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 26. júlí 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Lið 12. umferðar: Þrír úr Stjörnunni
Guðjón Baldvinsson framherji Stjörnunnar.
Guðjón Baldvinsson framherji Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hans Viktor og Atli Guðna eru báðir í liðinu.
Hans Viktor og Atli Guðna eru báðir í liðinu.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
12. umferðinni í Pepsi-deild karla lauk í gærkvöldi. 22 mörk litu dagsins ljós í umferðinni og lið umferðarinnar er mjög sóknarsinnnað að þessu sinni.

Stjarnan burstaði Grindavík 5-0 þar sem Guðjón Baldvinsson skoraði þrennu og Hilmar Árni Halldórsson eitt mark. Óttar Bjarni Guðmundsson var öflugur í vörn Stjörnunnar og Rúnar Páll Sigmundsson er þjálfari umferðarinnar eftir stórsigur Garðbæinga.

Höskuldur Gunnlaugsson lagði upp öll fjögur mörk Breiðabliks í 4-2 sigri á KA en þar var Aron Bjarnason einnig á skotskónum.

Guðjón Pétur Lýðsson skoraði og Bjarni Ólafur Eiríksson átti góðan leik þegar topplið Vals lagði Víking Ólafsvík.

Tobias Thomsen skoraði tvö mörk í 3-0 sigri KR á Víkingi R. en þar var Beitir Ólafsson öryggið uppmálað í markinu.

Atli Guðnason var maður leiksins í sigri FH á ÍA og Hans Viktor Guðmundsson var síðan bestur hjá Fjölni í 2-1 sigri á ÍBV.

Sjá einnig:
Lið 11. umferðar
Lið 9. umferðar
Lið 8. umferðar
Lið 7. umferðar
Lið 6. umferðar
Lið 5. umferðar
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar
Athugasemdir
banner
banner
banner