Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   sun 01. október 2017 14:00
Elvar Geir Magnússon
Gaupi fékk heiðursverðlaun Fótbolta.net
Gaupi ásamt ritstjórum Fótbolta.net, Elvari og Magnúsi.
Gaupi ásamt ritstjórum Fótbolta.net, Elvari og Magnúsi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net veitti heiðursverðlaun sín í fjórða sinn á föstudagskvöld í Petersen svítunni.

Heiðursverðaunin voru veitt á sama tíma og lokahóf 1. og 2. deildar karla og kvenna fór fram.

Heiðursverðlaun Fótbolta.net voru í fyrsta skipti afhent árið 2014 en þar er fólk verðlaunað fyrir framlag þeirra til íslenska boltans.

Íþróttafréttamaðurinn ástsæli Guðjón Guðmundsson, betur þekktur sem Gaupi, fékk heiðursverðlaunin þetta árið.

Gaupi hefur lengi starfað sem íþróttafréttamaður lengi, lýst fjölmörgum leikjum og stýrt mörgum þáttum um íslenska fótboltamenn á öllum aldri.

Þó hann hafi starfað hjá öðrum fjölmiðlum hefur hann verið góður vinur Fótbolta.net og alltaf til í að aðstoða við ýmislegt. Til dæmis hefur hann séð um að kynna lokahóf síðunnar í tíu ár.

Sjá einnig:
Ómar Smárason fékk heiðursverðlaunin 2016
Heimir Hallgrímsson fékk heiðursverðlaunin 2015
Viðar M. Þorsteinsson fékk heiðursverðlaunin 2014
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner