Robert Pires fyrrum leikmaður Arsenal vill að Kylian Mbappe fari til Liverpool frekar en Real Madrid í sumar.
Mbappe mun yfirgefa PSG í sumar en það eru miklar líkur á því að hann semji við Real Madrid. Hann hefur verið sterklega orðaður við félagið ansi lengi en Liverpool hefur verið nefnt til sögunnar einnig.
Pires sagði í viðtali við franska miðilinn Media Carre að hann yrði spenntur fyrir því að sjá Mbappe í búningi Liverpool.
„Ég vil sjá hann fara til Liverpool. Það er frábært félag, fjölskylda, engin pressa, rólegir stuðningsmenn. Ég segi við sjálfan mig að Mbappe og Salah gætu verið svakalegir saman. Ég held að hann geti vel neitað Real Madrid," sagði Pires.
Athugasemdir