Sveindís Jane Jónsdóttir var að skora þriðja mark íslenska landsliðsins gegn Póllandi og var það af dýrari gerðinni.
Íslenska liðið leiddi með tveimur mörkum gegn engu í hálfleik og gerði Sveindís endanlega út um leikinn á 66. mínútu.
Sveindís fékk boltann, með bakið í markið, en hún náði að snúa af sér varnarmann Póllands og og klára snyrtilega í netið.
Þetta var 10. landsliðsmark Sveindísar í 35. leiknum. Hún var þá að skora annan landsleikinn í röð.
Hægt er að sjá það hér fyrir neðan.
Sveindís Jane Jónsdóttir með frábært skot og kemur Íslandi í 3-0 forystu! Skorar í öðrum landsleiknum í röð ???????? pic.twitter.com/fu7biEPrEL
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) April 5, 2024
Athugasemdir