Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 11. október 2017 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin í dag - Stjarnan í Rússlandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan sækir í dag rússneska liðið Rossiyanka í 32-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna.

Fyrri leikurinn, sem var í Garðabænum, endaði með 1-1 jafntefli, en Stjörnukonur voru ekki ánægðar með þau úrslit.

Sjá einnig:
Katrín Ásbjörns: Hefðum átt að vinna þennan leik

Ljóst er að Stjarnan á erfiðan leik fyrir höndum í dag.

Íslensku landsliðskonurnar Sara Björk Gunnarsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir eru líka að spila í dag. Sara Björk og stöllur mæta Atletico Madrid á heimavelli en þær eru 3-0 yfir eftir fyrri leikinn á Spáni. Glódís og hennar liðsfélagar í Rosengard fara með 1-0 forskot í seinni leikinn gegn rúmenska liðinu Olimpia Cluj.

Leikir dagsins:
14:00 Rossiyanka - Stjarnan
15:00 Wolfsburg - Atletico Madrid
17:00 Rosengard - Olimpia Cluj
Athugasemdir
banner
banner