Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   sun 15. apríl 2018 19:30
Gunnar Logi Gylfason
Kevin de Bruyne telur Salah verða valinn bestan
Mynd: Getty Images
Kevin de Bruyne, miðjumaður nýkrýndra Englandsmeistara Manchester City, telur að Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, verði valinn besti leikmaður Englands á þessu tímabili.

„Ef enginn úr okkar liði verður valinn þá held ég að hann eigi það skilið," sagði Belginn og hélt áfram. „Hann vinnur örugglega hvort sem er. Hann hefur verið ótrúlegur og þegar þú keppir við einhvern sem hefur skorað svo mörg mörk, þá vinnurðu ekki."

Hann sagðist einnig vera mjög ánægður með bæði frammistöðu sína og liðsins síns á þessu tímabili og skildi engan undra enda hefur hann verið lykilmaður í langbesta liði deildarinnar.

Manchester City varð Englandsmeistari í dag þegar nágrannar þeirra í Manchester United töpuðu 0-1 gegn botnliði WBA og eiga því ekki möguleika á að ná City þegar bæði lið eiga fimm leiki eftir af tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner