Flytja þurfti leikmann með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landsspítalann í Reykjavík eftir leik Snæfellsnes og Sindra í 2. flokki karla á Hellissandi í dag.
Á lokasekúndum leiksins lenti leikmönnum saman og einn leikmaður úr hvoru liði fékk að líta rauða spjaldið.
Á lokasekúndum leiksins lenti leikmönnum saman og einn leikmaður úr hvoru liði fékk að líta rauða spjaldið.
Leikmaður Sindra, fæddur árið 1998, missti stjórn á skapi sínu og réðst á leikmann Snæfellsnes með þeim afleiðingum að hann slasaðist illa og strax var kallað á lögreglu og sjúkralið.
Leikmaður Sindra sparkaði meðal annars í leikmann Snæfellsnes þegar hann lá liggjandi í jörðinni.
Lögreglan var kölluð á svæði til að taka skýrslu en möguleiki er á að lögð verði fram ákæra vegna líkamsárasar.
Fórnarlamb árásarinnar var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landsspítalann og líðan hans er eftir atvikum en hann er ekki í lífshættu.
Leikurinn í dag var í C-riðli í 2. flokki en lokatölur urðu 2-1 fyrir Sindra.