Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25094 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR17.09.2025, 10:48

Reynir Haralds leggur skóna á hilluna (Staðfest)

ÍR-ingurinn Reynir Haraldsson hefur lagt skóna á hilluna. Hann er þrítugur vinstri bakvörður sem lék lengstum með uppeldisfélaginu á sínum ferli. Hann lék einnig með HK, Létti og Fjölni á sínum ferli. Reynir lék 283 KSÍ leiki og skoraði í þeim 27 mörk. Í sumar lék hann tólf leiki með Fjölni, skipti yfir í ÍR í glugganum lék og fimm leiki með liðinu seinni hluta móts. Alls urðu leikirnir í B-deild 100 og mörkin fimm. Á sínum tíma lék Reynir fjóra leiki með U16 landsliðinu.

FRÉTTIR16.09.2025, 12:01

Emil Ásmunds leggur skóna á hilluna (Staðfest) - „Lék, lifði, barðist og þjáðist"

Fylkismaðurinn Emil Ásmundsson hefur lagt skóna á hilluna. Hann er þrítugur miðjumaður sem uppalinn er hjá Fylki og spilaði lengst á ferlinum með uppeldisfélaginu. Ungur að árum fór hann til Brighton á Englandi og var í þrjú ár. Eftir tímabilið 2019 samdi Emil við KR en meiddist illa, ekki í eina skiptið á ferlinum, og spilaði ekki deildarleik fyrr en í september 2021. Hann sneri svo aftur í Fylki fyrir tímabilið 2022 og lék síðustu fjögur tímablin á ferlinum með uppeldisfélaginu. Hann missti af byrjuninni á þessu tímabili vegna meiðsla, náði að spila ellefu leiki og skoraði í þeim þrjú mörk.

FRÉTTIR14.09.2025, 13:42

Selles rekinn frá Sheffield United (Staðfest)

Spænski stjórinn Ruben Selles hefur verið látinn taka poka sinn hjá Sheffield United eftir aðeins fimm leiki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

FRÉTTIR14.09.2025, 09:30

Farinn aftur til Tyrklands frá Chelsea (Staðfest)

David Datro Fofana er genginn til liðs við Fatih Karagümrük frá Chelsea með kaupmöguleika. Fofana var ekki inn í myndinni hjá Enzo Maresca en hann var orðaður við Preston og Charlton á gluggadeginum.

FRÉTTIR13.09.2025, 16:06

Lengjudeildin: Þórsarar unnu deildina (Staðfest) - Selfoss féll

Þór er komið upp í Bestu deild karla eftir að hafa unnið Þrótt, 2-1, í lokaumferð Lengjudeildarinnar í Laugardalnum í dag. Selfoss er fallið eftir 4-1 tap gegn Keflavíkingum. Njarðvík, Þróttur, HK og Keflavík fara öll í umspil.

FRÉTTIR12.09.2025, 12:15

Emanuel Emegha í Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur gengið frá samningi við sóknarmanninn Emanuel Emegha frá Strasbourg í Frakklandi. Leikmaðurinn mun skipta yfir til Chelsea árið 2026, en ekki kemur fram hvort það verði í janúar eða næsta sumar.

FRÉTTIR11.09.2025, 22:00

Donnarumma: Pep er besti þjálfari heims

Ítalski landsliðsmarkvörðurinn Gianluigi Donnarumma var keyptur til Manchester City í sumar og er hann mjög stoltur af því að spila fyrir enska stórveldið eftir fjögur ár hjá Paris Saint-Germain.

FRÉTTIR10.09.2025, 22:30

Brownhill til Al Shabab (Staðfest)

Enski miðjumaðurinn Josh Brownhill var kynntur hjá sádi-arabíska félaginu Al Shabab í kvöld, en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu.

FRÉTTIR10.09.2025, 19:26

Eriksen til Wolfsburg (Staðfest)

Danski miðjumaðurinn Christian Eriksen skrifaði í dag undir tveggja ára samning við þýska félagið Wolfsburg.

FRÉTTIR09.09.2025, 15:24

Arna Eiríks seld frá FH til Vålerenga (Staðfest)

FH hefur staðfest að miðvörðurinn Arna Eiríksdóttir hafi verið seld til norska meistaraliðsins Vålerenga. Hún er annar leikmaðurinn sem FH selur í atvinnumennsku með stuttu millibili en Elísa Lana Sigurjónsdóttir var nýverið seld til Kristianstad í Svíþjóð.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.