Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25123 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR02.02.2025, 10:35

Kevin Danso til Tottenham (Staðfest)

Tottenham Hotspur hefur fest kaup á austurríska miðverðinum Kevin Danso en hann kemur til félagsins frá Lens í Frakklandi. Hann kemur á láni út tímabilið og verða félagaskiptin gerð varanleg í sumar.

FRÉTTIR01.02.2025, 22:53

ÍA kaupir Hauk Andra frá Lille (Staðfest)

Haukur Andri Haraldsson er genginn aftur til liðs við ÍA frá Lille en Skagaliðið kaupir hann frá franska liðinu. Hann gerir þriggja ára samning við Skagamenn.

FRÉTTIR01.02.2025, 11:00

Guy Smit til Vestra (Staðfest)

Hollenski markvörðurinn Guy Smit er genginn í raðir Vestra á Ísafirði en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.

FRÉTTIR01.02.2025, 07:00

Finnur Orri leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Finnur Orri Margeirsson tilkynnti í gær að hann hafi lagt skóna á hilluna eftir 17 ár í efstu deild. Finnur Orri er 33 ára gamall en hann er uppalinn í Breiðabliki. Hann lék sinn fyrsta leik árið 2008 en hann lék alls 439 leiki og skoraði tíu mörk. Hann lék einnig með KR og FH á ferlinum. Hann varð Íslandsmeistari með Breiðabliki 2010 en hann varð bikarmeistari árið áður, þá varð hann Íslandsmeistari með KR árið 2019. Hann lauk ferlinum í Hafnarfirðinum en hann lék þar frá 2022.

FRÉTTIR31.01.2025, 18:20

Jhon Duran kominn til Al-Nassr (Staðfest)

Jhon Duran er genginn til liðs við Al-Nassr frá Aston Villa. Al-Nassr greiðir rúmlega 64 milljónir punda fyrir hann. Hann er samningsbundinn til ársins 2030. Þess kólumbíski framherji gekk til liðs við Villa frá Chicago Fire árið 2023 fyrir um 17 milljónir punda.

FRÉTTIR31.01.2025, 16:44

Neymar mættur heim í Santos (Staðfest) - Prinsinn snýr aftur

Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar er mættur aftur til Santos í Brasilíu eftir tólf ár í burtu frá félaginu. Neymar kemur frá Al-Hilal í Sádi-Arabíu. Þegar Neymar var síðast hjá Santos vissi allur heimurinn að þarna væri stjarna á ferðinni og hann átti eftir að eiga farsælan feril. Hann hefur glímt við meiðsli síðustu ár og náði ekki að spila mikið með Al-Hilal. Þar á undan var hann hjá PSG og Barcelona. Neymar er 32 ára og á að baki 128 landsleiki fyrir Brasilíu og í þeim hefur hann skorað 79 mörk. Hann vann Ólympíuleikana með landsliðinu árið 2016. Hann vann spænsku deildina tvisvar með Barcelona, Meistaradeildina einu sinni, bikarinn þrisvar og HM félagsliða einu sinni. Hjá PSG vann hann frönsku deildina fimm sinnum og bikarinn þrisvar. Al-Hilal varð svo meistari á síðasta tímabili en eins og fyrr segir átti Neymr ekki stóran þátt í því.

FRÉTTIR31.01.2025, 16:13

Vigdís Lilja seld til Anderlecht (Staðfest)

Íslandsmeistarar Breiðablik hafa selt Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur til belgísku meistaranna í Anderlecht. Hún er komin með félagaskipti til Belgíu og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2027. Vigdís, sem er uppalin í Kópavogi, er fædd árið 2005 og hefur spilað með meistaraflokki Breiðabliks frá árinu 2020. Vigdís á að baki fjölda leikja með U-16, U-17, U-19 og U-23 ára landsliðum Íslands. Framherjinn skoraði ellefu mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni í fyrra þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari. Hún varð einnig Íslandsmeistari 2020 og bikarmeistari 2021.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.