Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 01. febrúar 2014 18:00
Gunnar Már Hauksson
Moyes: Ég veit ekki hvað við þurfum að gera til að vinna
David Moyes
David Moyes
Mynd: Getty Images
David Moyes var svekktur eftir tap liðs síns Manchester United, á liði Stoke í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Charlie Adam skoraði bæði mörk Stoke og Robin Van Persie skoraði mark Manchester United. David Moyes er ekki viss hvað liðið þarf að gera til þess að vinna.

,,Ég veit ekki hvað við þurfum að gera til að vinna."

,,Mér fannst við vera alveg sérstaklega óheppnir. Við spiluðum vel við erfiðar aðstæður."

,,Við áttum að vera búnir að tryggja okkur sigurinn miðað við öll tækifærin sem við fengum í dag og við getum aðeins kennt okkur sjálfum um."
Athugasemdir
banner
banner