Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 01. febrúar 2020 13:56
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Bjarni Mark með tvennu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Mark Antonsson skoraði tvennu er Brage rúllaði yfir Sandviken í æfingaleik í dag.

Bjarni Mark og félagar skoruðu fjögur mörk á fyrsta stundarfjórðungi leiksins og tryggðu sér þannig auðveldan sigur.

Levski Sofia gerði lagði svo Rapid frá Vínarborg að velli en Hólmar Örn Eyjólfsson er lykilmaður hjá Levski.

Rúnar Már Sigurjónsson var þá í liði FC Astana sem tapaði fyrir Kaupmannahöfn á Atlantic Cup æfingamótinu í gær.

Brage 4 - 0 Sandviken
1-0 R. Sellin ('5)
2-0 L. Pilana ('6)
3-0 Bjarni Mark Antonsson ('8)
4-0 Bjarni Mark Antonsson ('15)

Kaupmannahöfn 1 - 0 FC Astana
1-0 Michael Santos ('3)

Rapid Vienna 1 - 2 Levski Sofia
1-0 T. Fountas ('32)
1-1 ('78)
1-2 ('93)
Athugasemdir
banner
banner
banner