Bayern hefur gert tilboð í Díaz - Liverpool vill Ekitike
   lau 01. febrúar 2020 15:29
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: Kórdrengir skoruðu sex gegn Árborg
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þorbjörnsson Steinke
Kórdrengir 6 - 0 Árborg
Albert Brynjar Ingason 2
Magnús Þórir Matthíasson
Páll Sindri Einarsson
Aron Skúli Brynjarsson
Daníel Gylfason

Kórdrengir gjörsamlega rúlluðu yfir Árborg er liðin mættust í riðlakeppni C-deildar Fótbolta.net mótsins.

Albert Brynjar Ingason skoraði tvennu í auðveldum sex marka sigri og eru Kórdrengir búnir að vinna fyrstu tvo leikina sína, eins og við var að búast.

Magnús Þórir Matthíasson, Páll Sindri Einarsson, Aron Skúli Brynjarsson og Daníel Gylfason komust einnig á blað.

Kórdrengir eiga leik við botnlið Elliða í síðustu umferð riðlakeppninnar.

Árborg er með þrjú stig eftir sigur gegn Elliða í fyrsta leik.
Athugasemdir
banner