Víkingur Ó 1 - 1 Vestri 4-3 í vítaspyrnukeppni
0-1 Elmar Atli Garðarsson ('18)
1-1 ('45)
0-1 Elmar Atli Garðarsson ('18)
1-1 ('45)
Víkingur Ólafsvík tryggði sér sjöunda sæti B-deildar í Fótbolta.net mótinu í dag, með sigri gegn Vestra eftir vítaspyrnukeppni.
Liðin mættust í Skessunni í Hafnarfirði og komust Vestfirðingar yfir með marki frá Elmari Atla Garðarsyni á 18. mínútu.
Víkingur jafnaði skömmu fyrir leikhlé og tókst hvorugu liði að skora í síðari hálfleik. Staðan því enn 1-1 og grípa þurfti til vítaspyrnukeppni.
Bæði lið skoruðu úr þremur fyrstu spyrnum sínum og klúðruðu þeirri fjórðu. Ólsarar skoruðu úr fimmtu spyrnunni sinni en það gerði Vestri ekki.
Staðan:
1. Keflavík/Afturelding
2. Keflavík/Afturelding
3. Þróttur V./Njarðvík
4. Þróttur V./Njarðvík
5. Haukar
6. Selfoss
7. Víkingur Ó.
8. Vestri
Athugasemdir