16.10.26 - 14:22
Elvar Geir Magnússon
Valtýr Björn: Af hverju eru þeir ekki nafngreindir?

Valtýr Björn á landsleik á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kristinn Kjærnested.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Matthías Már

Fjölmiðlamaðurinn Valtýr Björn Valtýsson er á þeirri skoðun að Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari eigi að gefa það upp hvaða leikmenn voru sekir um agabrot í síðasta landsleikjaglugga.
„Af hverju eru þeir ekki nafngreindir? Fólkið sem er að borga sig inn á leiki dýrum dómi á að fá að vita þetta. Þetta er agabrot og mér finnst að landsliðsþjálfarinn eigi að koma fram af heilindum við fólkið í landinu. Af hverju erum við í einhverjum feluleik?" segir Valtýr í þættinum Mín skoðun.
Þar ræddi hann við fótboltalýsandann Kristin Kjærnested um agabrot landsliðsmanna sem hafa mikið verið til umfjöllunar
„Það má heldur ekki gleyma því þegar svona umræða fer í gang þá eru að ósekju blásaklausir dregnir inn í umræðuna og velt því fyrir sér hvort þetta sé þessi eða hinn. En ef sambandið og þjálfarinn vilja ekki nafngreina þá er bara ein leið í þessu. Hvort þessir kappar séu menn í að stiga fram og segja 'Þetta var ég eða þetta vorum við'" segir Kristinn í þættinum.

TENGT EFNI
Arnar um agabrotin: Undirbúningurinn fór til fjandans
Eru þessir menn bara í næsta verkefni?
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari segir að skömm þeirra leikmanna sem brutu agareglur sé nægileg refsing. Málinu sé lokið í sínum huga.
„Það er sorglegt að heyra af þessu og mikil vonbrigði, líka bara gagnvart landsliðsþjálfaranum sem hefur verið gagnrýndur. Það er grátlegt að þetta skuli gerast. Á hinn bóginn finnst manni skrítið hvernig er tekið á þessu. Það er sagt að búið sé að leysa þetta, en leysa þetta hvernig? Eru þessir menn bara í næsta verkefni?"
„Það steig íþróttafréttamaður fram (Gunnar Birgisson) og honum fannst þetta óttalegur tittlingaskítur. Við vorum ekki á staðnum og maður veit lítið. Það er erfitt að fara að segja að þetta hafi ekki verið stórmál. Það er ljóst að þetta var rætt innan landsliðsins, fyrirliðinn fór fyrir því. Þetta hefur verið rætt innan stjórnar knattspyrnusambandsins. Mér fannst þetta sem Gunnar var að segja kóróna búraháttinn í þessu máli," segir Kristinn og Valtýr Bætir við: „Ef allt er eðlilegt þá verða þessir menn ekki í næsta landsliðshóp."
„Ég get tekið undir að það sé eðlilegt að það séu afleiðingar í þessu. Arnar sagði sjálfur að þetta mál hefði sett allan undirbúning á afturlappirnar. Það er bara sorglegt að þetta sé komið aftur. Það reynir líka á Arnar Gunnlaugsson í þessu dæmi. Það þarf að stíga fast til jarðar og skilaboðin eiga að vera mjög skýr, þetta sé einfaldlega ekki í boði," segir Kristinn Kjærnested.