Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 01. febrúar 2021 12:26
Magnús Már Einarsson
Elias Tamburini á leið í ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vinstri bakvörðurinn Elias Tamburini er á leið til ÍA samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Hinn 25 ára gamli Elias hefur spilað með Grindavík undanfarin þrjú ár.

Elias, sem er frá Finnlandi, hefur samtals spilað 54 deildar og bikarleiki með Grindvíkingum.

Í fyrra spilaði hann 18 af 20 leikjum Grindvíkinga í Lengjudeildinni.

Elias kom til Grindvíkinga eftir að hafa spilað í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner