01.02.21 - 16:29
Elvar Geir Magnússon
Maitland-Niles fer til West Brom


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Arsenal hefur náð samkomulagi við West Bromwich Albion um að lána miðjumanninn Ainsley Maitland-Niles.
Þessi 23 ára enski miðjumaður er á leið í læknisskoðun hjá West Brom en Sky Sports greinir frá þessu.
Þessi 23 ára enski miðjumaður er á leið í læknisskoðun hjá West Brom en Sky Sports greinir frá þessu.
Maitland-Niles hefur mikið verið í umræðunni í dag en Leicester, Southampton og Newcastle sýndu öll áhuga á að fá hann. Arsenal vildi ekki lána hann til félags sem er í baráttu um meistaradeildarsæti.
West Brom er í nítjánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og vonast til að Maitland-Niles hjálpi liðinu að koma sér úr þeim vandræðum.
West Brom er í nítjánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og vonast til að Maitland-Niles hjálpi liðinu að koma sér úr þeim vandræðum.
