Fotbolti.net
01.02.23 - 10:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mudryk til rannsóknar út af TikTok myndbandi

Mykhaylo Mudryk.

Mykhaylo Mudryk.

Canon

Mynd: Getty Images

Mykhaylo Mudryk er ekki búinn að vera lengi á Englandi en hann er núna strax til rannsóknar hjá enska fótboltasambandinu.
Málið snýr að TikTok myndbandi sem hann gerði og setti í dreifingu síðasta sumar.

Mudryk setti inn myndband þar sem hann fer með textann í rapplagi sem Lil Baby söng fyrst. Í laginu má finna textabrot sem hægt er að túlka sem kynþáttafordóma.

Umboðsmaður Mudryk ræddi við The Sun um málið og sagði: „Mykhailo biðst innilegrar afsökunar ef einhver móðgaðist á myndbandinu."

„Hann ætlaði sér bara að herma eftir texta í lagi. Hann sér eftir þessari ákvörðun og veit að þetta er ekki viðeigandi."

Mudryk gekk í raðir Chelsea frá Shakhtar Donetsk í janúarglugganum. Það verður að koma í ljós hvort enska fótboltasambandið muni refsa honum fyrir myndbandið, en það skal tekið fram að hann var ekki leikmaður Chelsea þegar hann gerði það.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.