Manchester City er deildabikarmeistari þriðja árið í röð eftir sigur á Aston Villa á Wembley í dag.
Öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleiknum. Sergio Aguero og Rodri skoruðu fyrir City áður en Mbwana Samatta minnkaði muninn fyrir Aston Villa eftir slæm mistök John Stones.
Vísir.is hefur birt myndskeið af mörkunum og vörslu Bravo. Má sjá það allt saman hér að neðan.
Aston Villa 1 - 2 Manchester City
0-1 Sergio Aguero ('20 )
0-2 Rodri Hernandez ('30 )
1-2 Mbwana Samata ('41 )
Sjá einnig:
Enski deildabikarinn: Man City meistari þriðja árið í röð
Athugasemdir