Kwame Quee semur við lið í Sádí-Arabíu


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Kwame Quee skrifað undir samning við Najran Sport Club sem leikur í næst efstu deild í Sádí-Arabíu.
Kwame kom fyrst til Íslands árið 2017 þegar hann samdi við Víking Ólafsvík þar sem hann lék tvö tímabil áður en hann skrifaði undir hjá Breiðablik.
Hann fór síðan á láni í Víking Reykjavík síðari hluta tímabilsins 2020 og skrifaði síðan undir eins árs samning við félagið, hann varð Íslands og bikarmeistari með Víkingi síðasta sumar.
Í viðtali við Fótbolta.net fyrr í vetur sagðist Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings gjarnan vilja halda honum. Víkingur hafi hins vegar ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við leikmanninn.
Kwame sem er 25 ára gamall lék með landsliði Sierra Leone í Afríkukeppninni í vetur.
