01.03.22 - 14:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leikmenn Vestra æfa með Breiðabliki og Val

Kundai Benyu

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Starfsmaður Fótbolta.net tók eftir því að miðjumaðurinn Kundai Benyu væri að æfa með Breiðabliki. Kundai er leikmaður Vestra en leikmenn félagsins æfa nokkrir á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana.
„Óskar leyfði honum að æfa með Breiðabliki í nokkra daga. Ég er búinn að vera með alla okkar leikmenn hjá Þrótti R. en eftir að erlendu leikmennirnir þeirra mættu til landsins þurfti ég að færa menn til. Það æfa núna tveir með Val, Kundai er hjá Breiðabliki og þrír eru áfram hjá Þrótti," sagði Samúel Samúelsson, meðstjórnandi Vestra.
Það er ekkert í umræðunni að Kundai gangi í raðir Breiðabliks eða hvað?
„Kundai er algjör lykilmaður í okkar liði, þetta snýst bara um að hann fái að æfa í bænum. Hingað til hefur allavega enginn frá Breiðabliki hringt í mig og sagst vilja kaupa hann," sagði Sammi.
Ennþá með þrjú íslensk nöfn á blaði
Að lokum, er eitthvað að frétta í þjálfaramálum?
„Nei, það er ekkert sem ég get staðfest en ég ætla vona að eitthvað gerist í vikunni. Ég er með puttana á tveimur til þremur stöðum. Þetta eru bæði íslenskir og erlendir aðilar - ég er ennþá með þrjú íslensk nöfn á blaði," sagði Sammi.