
Þrír ungir leikmenn fæddar árið 2005 hafa skrifað undir tveggja ára samninga við Gróttu; þær Elín Helga Guðmundsdóttir, Lilja Lív Margrétardóttir og Lilja Davíðsdóttir Scheving.
Lilja Lív steig sín fyrstu skref með meistaraflokki fyrir rúmu ári. Hún spilaði mikið á undirbúningstímabilinu og lék svo átta leiki í deild og bikar. Lilja hefur síðustu mánuði æft reglulega með U16 ára landsliði Íslands.
Lilja Scheving spilaði tvo leiki með meistaraflokki í fyrra en kom svo af krafti inn í Gróttuliðið á þessu undirbúningstímabili. Hún æfði á dögunum með U16 landsliðinu en lenti í því óláni að fá höfuðhögg í lok febrúar sem hefur haldið henni frá keppni síðustu vikur.
Elín Helga var líkt og Lilja Lív og Lilja Scheving lykilkona í 3. flokki Gróttu/KR sem komst í úrslitaleik Íslandsmótsins síðasta haust. Elín hefur komið af krafti inn í æfingahóp Gróttu í vetur og komið við sögu í flestum leikjum það sem af er þessu undirbúningstímabili.
Við sama tilefni skrifaði Eydís Lilja Eysteinsdóttir undir sinn fyrsta samning við Gróttu. Eydís var lykilleikmaður í Gróttuliðinu árin 2017 og 2018 en spilaði ekkert árið 2019 vegna barneigna. Eydís vann sig hægt og bítandi inn í Gróttuliðið í fyrra og skoraði þegar upp var staðið 4 mörk í 13 leikjum. Í vetur hefur Eydís verið í stuði í framlínu Gróttu og skorað sex mörk í fyrstu sjö leikjum undirbúningstímabilsins. Eydís, sem er uppalin í Stjörnunni, er 28 ára gömul og er elsti leikmaður Gróttuliðsins!
Grótta hafnaði í sjötta sæti Lengjudeildar kvenna á síðustu leiktíð.
Athugasemdir