01.04.23 - 16:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp um Rodri: Ekki viss um að við hefðum unnið einum fleiri


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp stjóri Liverpool var ekki sáttur með frammistöðu sinna manna, sérstaklega í síðari hálfleik í 4-1 tapinu gegn Man City í dag.
Leikmenn Liverpool voru allt annað en sáttir þegar Rodri braut af sér í fyrri hálfleik en hann var þá ný búinn að fá gult spjald og leikmenn Liverpool vildu sjá annað fara á loft þegar Rodri stöðvaði skyndisókn.
Simon Hooper dómari leiksins dæmdi hins vegar ekkert. Klopp tjáði sig um atvikið eftir leik.
„Ég sá það ekki nægilega vel en ég átta mig á aðstæðum. Hefði hann geta engið gult? Já, sennilega. Hann fær það ekki núna. Ég er ekki viss um að við hefðum unnið gegn tíu mönnum til að vera hreinskilinn," sagði Klopp.
