Dortmund að krækja í Sule frá Bayern

Sule og Virgil van Dijk eru þokkalegir í loftinu.

Mynd: Getty Images

Sule og Virgil van Dijk eru þokkalegir í loftinu.

Mynd: Getty Images
Stjórnendur FC Bayern hafa staðfest að varnarmaðurinn Niklas Süle mun yfirgefa félagið á frjálsri sölu í sumar þrátt fyrir tilraunir Bæjara til að framlengja samninginn. Fabrizio Romano greinir frá því að Sule sé búinn að semja við Borussia Dortmund, helstu keppinauta Bayern í þýska boltanum.
Süle, sem er aðeins 26 ára gamall og á 170 leiki að baki fyrir Bayern og 37 fyrir þýska landsliðið, vill takast á við nýja áskorun þar sem hann er þreyttur á að vera varaskeifa hjá Bayern.
Sule er ekki eini varnarmaðurinn sem Dortmund er búið að tryggja sér fyrir sumarið því Nico Schlotterbeck kemur frá Freiburg.
Schlotterbeck er 22 ára gamall miðvörður sem var gríðarlega eftirsóttur í vor en valdi Dortmund.
Dortmund borgar um 25 milljónir evra fyrir Schlotterbeck sem getur einnig spilað í vinstri bakverði og á miðjunni. Schlotterbeck var lykilmaður í U21 liði Þýskalands og á tvo leiki að baki fyrir A-landsliðið.
