Ian Jeffs: Ekki neitt vesen hingað til
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Mér fannst við stjórna leiknum frá fyrstu mínútu. Við áttum fullt af færum og mér fannst þetta vera sannfærandi sigur,\"</I> sagði Ian Jeffs þjálfari ÍBV eftir 3-0 sigur á Aftureldingu í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Jeffs var í sigurliði með ÍBV í Pepsi-deild karla í gær og hann var aftur í sigurliði í Pepsi-deild kvenna í dag.
„Ég er mjög ánægður þessa dagana. Þetta er góð vika hjá ÍBV og vonandi endar hún vel á föstudaginn (á bikarleik gegn HK/Víkingi),\" sagði Jeffs sem hefur í nógu að snúast að þjálfa einn meistaraflokk og spila með öðrum.
„Þetta tekur svolítið á og maður er stundum andlega þreyttur. Mér finnst þetta rosalega gaman. Ég og Jói (Jóhannes Harðarson þjálfari karlaliðs ÍBV) stjórnum þessu rosalega vel saman. Stundum fæ ég aukafrí karlamegin og þetta hefur ekki verið neitt vesen hingað til.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.