Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
banner
þriðjudagur 23. apríl
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 26. apríl
Championship
QPR - Leeds - 19:00
Bundesligan
Bochum - Hoffenheim - 18:30
Serie A
Frosinone - Salernitana - 18:45
La Liga
Real Sociedad - Real Madrid - 19:00
Elitettan - Women
Jitex W - Lidkoping W - 17:00
Sunnana W - Malmo FF W - 17:30
fim 01.jún 2023 13:11 Mynd: Samsett
Magazine image

Fimm bestu miðjumenn Bestu deildarinnar

Fótbolti.net hefur sett saman fjórar mismunandi dómnefndir til að velja fimm bestu markverðina, varnarmennina, miðjumennina og sóknarmennina í Bestu deildinni - ein dómnefnd fyrir hverja stöðu á vellinum.

Sérfræðingarnir voru beðnir um að horfa ekki einungis til yfirstandandi tímabils í vali sínu, heldur á heildarmyndina. Þeir voru einfaldlega spurðir að því hver væri heilt yfir besti leikmaðurinn í stöðunni sem þeir voru spurðir út í. Næst kraftröðum við fimm bestu
miðjumönnunum, frá eitt til fimm, út frá niðurstöðu í kosningu fimm sérfræðinga. Hérna var einungis hægt að kjósa sexur, áttur og tíur en ekki kantmenn.

Stefán Teitur er einn af sérfræðingunum.
Stefán Teitur er einn af sérfræðingunum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Karl Einarsson.
Viktor Karl Einarsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Freyr Sigurðsson.
Kristinn Freyr Sigurðsson.
Mynd/Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Pablo Punyed.
Pablo Punyed.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Algjör sigurvegari.
Algjör sigurvegari.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gísli er frábær leikmaður.
Gísli er frábær leikmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gísli er í öðru sæti á listanum.
Gísli er í öðru sæti á listanum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á toppnum er Aron Jóhannsson.
Á toppnum er Aron Jóhannsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron í leik með Val.
Aron í leik með Val.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sjá einnig:
Fimm bestu markverðir Bestu deildarinnar
Fimm bestu varnarmenn Bestu deildarinnar

Miðjumannadómnefndina skipuðu: Arnór Smárason (fyrrum landsliðsmaður og núverandi leikmaður ÍA), Baldur Sigurðsson (einn besti miðjumaður í sögu efstu deildar), Brynjar Björn Gunnarsson (fyrrum landsliðsmaður og þjálfari), Júlíus Magnússon (Fredrikstad), Stefán Teitur Þórðarson (leikmaður Silkeborg og íslenska landsliðsins)

5. Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Í fimmta sæti á þessum lista er Viktor Karl Einarsson, miðjumaður Breiðabliks. Fór ungur að árum til AZ Alkmaar í Hollandi og spilaði einnig í Svíþjóð áður en hann sneri aftur heim í Breiðablik fyrir tímabilið 2019. Hefur síðan þá verið einn besti miðjumaður deildarinnar en hann getur einnig leyst margar aðrar stöður á vellinum.

Á meðal þess sem sérfræðingarnir sögðu um Viktor:

„Er án efa einn besti miðjumaðurinn í deildinni. Hann getur líka leyst aðrar stöður á vellinum og gerir það ávallt vel."

„Viktor er með mikla hlaupagetu og með mikil gæði í sínum leik. Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir Blikaliðið og þeirra leikstíl. Alhliða frábær leikmaður."

4. Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
Kristinn Freyr hefur lengi verið einn besti leikmaður efstu deildar á Ísland, í einhver tíu ár núna. Hann hefur lengst af spilað með Val í efstu deild en hann spilaði með FH í fyrra og átti þá erfitt tímabil, eins og allir leikmenn Fimleikafélagsins. Hann gekk aftur í raðir Vals fyrir tímabilið sem er núna í gangi og hefur smollið vel þar inn. Hann og Aron Jóhannsson eru að leika sem áttur inn á miðsvæði Vals og hafa gert það mjög vel.

Á meðal þess sem sérfræðingarnir sögðu um Kristin:

„Kryddbóndi. Eins og Gundogan, nema aðeins sóknarsinnaðari. Spyrnutækni og útsjónarsemi á atvinnumannaleveli."

„Sturlaður leikmaður. Tekur enginn boltann af honum, sama hvað menn reyna. Alltaf á hreyfingu, alltaf klár í að fá boltann og tölurnar og titlarnir tala sínu máli."

„Hatar að tapa hvort sem það er í leik eða á æfingu. Ég grenjaði úr hlátri í fyrra þegar hann var að fá mjög óverðskuldaða gagnrýni með FH þrátt fyrir að vera að leggja upp tíu dauðafæri í leik. Horfa betur á leikina, takk."

3. Pablo Punyed (Víkingur R.)
Pablo er fyrir löngu búinn að festa sig í sessi sem einn besti og traustasti leikmaður Bestu deildarinnar. Víkingar þurftu að sækja sér sigurvegara á sínum tíma og þeir sóttu Pablo frá KR. Síðan þá hefur leiðin legið upp á við í Víkinni. Hefur einnig spilað með Fjölni, Fylki, ÍBV og Stjörnunni hér á landi, en hann er bara orðinn Íslendingur. Er harður í horn að taka og lætur menn finna fyrir því. Er líka með gríðarleg gæði þegar hann er með boltann í fótunum.

Á meðal þess sem sérfræðingarnir sögðu um Pablo:

„Algjör winner."

„Útsjónarsamur, klókur, leiðtogi og síðast en ekki síst þvílík gæði á flestum sviðum fótboltans. Sárafáa veikleika að finna í hans leik."

„Spilar til að vinna fótboltaleiki og mót. Er alltaf góður hvort sem hann spilar sexu, áttu eða tíu."

„Ekki bara góður í bolta, líka algjör winner og einn af mikilvægustu hlekkjum í velgengni Víkinga."

„Búinn að vera með betri miðjumönnum í deildinni síðustu ár. Hefur oft verið framar á vellinum en hann er núna, er að skila sexu hlutverki hjá Víking gríðarlega vel og er einn mikilvægasti leikmaður liðsins."

„Stýrimaður. Frábær að lesa leikinn og stjórna spili liðsins. Einn af þeim sem þú vilt vera með í liði en hatar að spila við."

2. Gísli Eyjólfsson (Breiðablik)
Í öðru sæti á listanum er Gísli Eyjólfsson, miðjumaður Breiðabliks, sem er alltaf að bæta sinn leik. Er klárlega einn af betri leikmönnum deildarinnar. Honum líður vel í Breiðabliki þar sem hann er búinn að spila þar langstærstan hluta ferils síns. Er búinn að vera algjörlega frábær í sumar, bestur í Blikaliðinu.

Á meðal þess sem sérfræðingarnir sögðu um Gísla:

„Yfirleitt unplayable."

„Öflugur miðjumaður Breiðabliks. Alltaf verið mjög vinnusamur bæði varnar og sóknarlega og getur tekið þátt bæði í spiluppbyggingu á eigin vallarhelmingi og að brjóta upp leikinn sóknarlega á vallarhelmingi andstæðingana. Búinn að skora mikilvæg mörk fyrir Breiðablik á þessu tímabili."

„Alvöru kokkur. Yfirburðar boltameðferð og kraftur gerir honum kleift að skeiða völlinn líkt og Náttfari frá Ytra Dalsgerði. Yfirleitt unplayable."

„Sýnir það ár eftir ár að hann er einn af bestu miðjumönnum deildarinnar. Góður í öllu."

„Komst inn á topp þrír listann minn eftir frammistöðu sína í sumar hingað til. Hefur verið góður lengi en nú virðist hann vera springa almennilega út."

„Hefur þann X-factor í sínum leik til að klára leiki sjálfur, sem fáir miðjumenn í deildinni hafa. Óstöðvandi þegar hann er beinskeyttur og áræðinn á síðasta þriðjungi."

„Hann er með þennan international hraða og drive með boltann sem mjög erfitt er að stoppa. Alvöru skotmaður. Hefði átt að vera lengur úti í atvinnumennsku ef þú spyrð mig."

1. Aron Jóhannsson (Valur)
Og efstur á listanum er Aron Jóhannsson, miðjumaður Vals og fyrrum leikmaður bandaríska landsliðsins. Býr yfir gæðum sem enginn annar leikmaður í þessari deild býr yfir, það er óhætt að fullyrða það. Má deila um það hvort hann sé miðjumaður eða sóknarmaður en á þessu tímabili hefur hann spilað sem miðjumaður við hlið Kristins Freys hjá Valsmönnum.

Á meðal þess sem sérfræðingarnir sögðu um Gísla:

„No Aron Jó, no party."

„Besti leikmaður deildarinnar."

„Spilar best sem miðjumaður í dag. Lætur Valsliðið tikka sóknarlega og sýnir gæðin sín í hverjum leik sem hann spilar."

„Pure gæði. Kann leikinn upp á tíu. Hefur allt sem þarf til að vera langbestur í þessari deild. Sendingar, fyrsta touch,slútt, auga í hnakkanum og sér alltaf hlaupin frá meðspilurum. Hann er með þetta winner mentality og lætur menn heyra það ef þeir eru ekki að standa sig."

„Augljóslega besti leikmaðurinn i þessari deild. Sakna að sjá hann sem pjúra níu en hann er með gæði sem fáir í þessari deild eru með. Skora,r leggur upp og er lykilmaður í sóknarleik Valsara. Þrátt fyrir gæði alls staðar í Valsliðinu veltur svolítið mikið á því hvernig hann verður hvort Valur verði með í titilbaráttu þegar upp er staðið."

„No Aron Jó, no party. Gæðin sem þessi gæi býr yfir eru á öðru leveli og það kristallast í því að Valur er allt annað lið þegar hann er ekki inn á."

Síðar í dag verður listinn yfir bestu sóknarmenn deildarinnar birtur.
Athugasemdir
banner
banner
banner