01.06.25 - 18:22
Sölvi Haraldsson
Byrjunarlið Breiðabliks og Víkings: Dóri og Sölvi gera báðir fimm breytingar

Höskuldur er mættur aftur í byrjunarlið Blika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Höskuldur er mættur aftur í byrjunarlið Blika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 hefst leikur Breiðabliks og Víkings í Bestu deildinni. Um er að ræða stórleik umferðarinnar en rétt í þessu voru byrjunarliðin að skila sér í hús.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 1 Víkingur R.
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, gerir fimm breytingar á byrjunarliði Blika eftir 4-1 tap gegn ÍA í seinustu umferð. Höskuldur Gunnlaugsson, Aron Bjarnason, Ágúst Orri Þorsteinsson, Andri Rafn Yeoman og Anton Logi Lúðvíksson koma inn í liðið fyrir þá Ásgeir Helga Orrason, Arnór Gauta Jónsson, Kristófer Inga Kristinsson, Viktor Elmar Gautason og Óla Val Ómarsson.
Alls eru einnig gerðar fimm breytingar á Víkingsliðinu eftir 1-0 sigur á Vestra í vikunni. Helgi Guðjónsson, Erlingur Agnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Stígur Diljan Þórðarson og Róbert Orri Þorkelsson koma inn í liðið en þeir Oliver Ekroth, Viktor Örlygur Andrason, Nikolaj Hansen, Matthías Vilhjálmsson og Ali Basem Almosawe detta úr liðinu.
Byrjunarlið liðanna má finna hér að neðan.

Byrjunarlið Breiðablik
Anton Ari Einarsson, Höskuldur Gunnlaugsson, Viktor Karl Einarsson, Kristinn Steindórsson, Aron Bjarnason (fyrirliði), Anton Logi Lúðvíksson, Ágúst Orri Þorsteinsson, Valgeir Valgeirsson, Viktor Örn Margeirsson, Andri Rafn Yeoman, Tobias Thomsen
Byrjunarlið Víkingur R.
Ingvar Jónsson, Gunnar Vatnhamar, Erlingur Agnarsson, Helgi Guðjónsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Daníel Hafsteinsson, Róbert Orri Þorkelsson, Tarik Ibrahimagic, Davíð Örn Atlason, Valdimar Þór Ingimundarson, Stígur Diljan Þórðarson