Landsliðskonan Hildur Antonsdóttir átti sterkan leik þó lið hennar, Madrid CFF hafi tapað 0-4 gegn Evrópumeisturum Barcelona í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í gær.
Hildur er með næst hæstu einkunnina í sínu liði á SofaScore og FlashScore sem taka saman tölfræði úr leiknum. Hún fær 6,9 og 6,5 á þessum síðum þrátt fyrir erfiðan leik hjá liðinu.
Hildur er með næst hæstu einkunnina í sínu liði á SofaScore og FlashScore sem taka saman tölfræði úr leiknum. Hún fær 6,9 og 6,5 á þessum síðum þrátt fyrir erfiðan leik hjá liðinu.
Hildur gekk í raðir Madríd árið 2024 en liðið endaði núna í tíunda sæti spænsku úrvalsdeildarinnar sem er ein sterkasta deild í heimi.
Hildur spilaði alla 30 deildarleiki Madídarliðsins á tímabilinu en það var aðeins einn annar leikmaður í hópnum sem gerði það líka.
Hildur er núna á leið til Póllands þar sem hún taka þátt í landsliðsverkefni með íslenska landsliðinu. Ísland mætir Úkraínu í mikilvægum leik í Þjóðadeildinni.



