Fotbolti.net
21.06.26 - 17:46
Kristján Hrafn Kristjánsson

Svekktur Maggi: Þetta var úr karakter

Auglýsing
Svekktur Maggi: Þetta var úr karakter
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Afturelding fór á Ísafjörð í dag og mætti Vestra. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik, um miðjan seinni hálfleik tók Vestri yfirhöndina og skoraði mark. Eftir það sótti Afturelding að krafti en náðu ekki að skora, á móti skoraði Vestri sitt annað mark og lokatölur voru 2-0.

Fótbolti.net ræddi við Magnús Má þjálfara Aftureldingar eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Vestri 2 - 0 Afturelding

2-0 tap í dag hver eru fyrstu viðbrögð eftir leik?

Svekktur, bæði með frammistöðuna og að sjálfsögðu úrslitin. Þetta var hreint út sagt ekki nógu góður leikur hjá okkur og vonbrigði eftir tapið í síðasta leik gegn HK þar sem við vorum ekki góðir. Við vorum allt of lengi í gang, eftir að við lendum undir þá fannst mér vera kraftur í okkur og fáum færi eftir færi til að skora, en þetta var svona einn af þeim dögum þar sem boltinn vill ekki inn og því fór sem fór".


Afturelding lágu mikið á Vestra bæði fyrir og eftir fyrsta mark leiksins en náðu ekki að skora.

Við höfum skorað mjög mikið í flestum leikjum í sumar svo þetta var úr karakter, við vorum að komast í stöður en vorum ekki að ná að skapa færi fyrri hluta leiksins en í lokin sköpuðum við færi eftir færi. Það er í raun lygilegt að við höfum ekki skorað en svona er fótboltinn og við þurfum einfaldlega að gera betur í teignum og í allri spilamennsku því að þetta var ekki nógu gott hjá okkur í dag. Við þurfum að vera betri í næsta leik á móti Njarðvík".


Vörn Aftureldingar slökkti á sér í fyrsta marki Vestra sem breytti leiknum. 


„Það voru mörg atriði í því marki sem voru ekki nógu góð hjá okkur, við töpum boltanum illa, við vorum ekki nógu fljótir að bregðast við varnarleiknum og þeir komast inn í teiginn og slútta vel. En fram að því áttum við að bregðast betur við, en svona er þetta, þetta er einn af þessum dögum sem gekk lítið upp hjá okkur og við þurfum að gera betur í næsta leik".


Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.